|
|
 
Opnunartími mánudaga til föstudaga frá kl. 8 til 17
Nánari upplýsingar & pöntunarsími 511 4111
Áhugavert lesefni
|
|
 
|
|
AFL | 05. febrúar 2010 - kl. 07:09 Eru nokkur aukakíló slæm?
Ný áströlsk rannsókn bendir til þess, að aldrað fólk, sem er með hóflega mörg aukakíló lifi lengur en þeir sem eru í svokallaðir kjörþyngd. Þeir sem þjást af offitu eða eru of léttir lifa hins vegar skemur en aðrir.
Grein um rannsóknina birtist í blaðinu Journal of the American Geriatric Society og þar kemur fram, að það sé ekki hollt fyrir fólk sem komið er yfir sjötugt, að fara í megrun. Fram kemur einnig, að kyrrsetur stytti lífið.
Í rannsókninni, sem gerð var á vegum háskóla í Ástralíu, var markmiðið að rannsaka samband þyngdar og langlífis. ´
Í ljós kom, að þeir sem voru skilgreindir sem heldur of þungir lifðu að jafnaði lengur en aðrir og hættan á að þeir fengju tiltekna sjúkdóma, svo sem hjartasjúkdóma, krabbamein og króníska öndunarfærasjúkdóma voru einnig minnstar.
Á vef BBC er haft eftir Leon Flicker, sem stýrði rannsókninni, að hún bendi til þess, að líkamsfita hafi önnur áhrif á þá, sem náð hafi áttræðisaldri en yngra fólk.
tekið af vef www.mbl.is 30.01.2010
stebbiTil baka |
AFLið á FACEBOOK
 Ný smáfréttarás fyrir alla sem huga að heilsunni! Gangið í hópinn og fáið sendar heilsutengdar fréttir og annað skemmtilegt frá okkur. Skráið ykkur hér.
Nýjar fréttir
 Mígreni og hjartaáfall
 Brjósklos (Discus prolaps)
 Stöðuleikaþjálfun fyrir ökkla
 Átak gegn munntóbaksnotkun
 Góð afnæmismeðferð
|