AFL sjúkraþjálfun • Borgartúni 6 • 105 Reykjavík • Sími 511 4111
AFL
Fréttir

   



Opnunartími

mánudaga til föstudaga
frá kl. 8 til 17



Nánari upplýsingar
& pöntunarsími 
511 4111


Áhugavert lesefni

AFL sjúkaþjálfun

 

AFL | 29. janúar 2010 - kl. 09:05
Fitusýrur í matvælum

Í næringarráðleggingum er mælt með því að fólk borði eins lítið af trans-fitusýrum úr iðnaðarhráefni og hægt er. Einnig er mælt með því að takmarka neyslu á mettuðum fitusýrum. Með þessu móti er hægt að draga úr líkum á hjartasjúkdómum. Skortur hefur verið á upplýsingum um trans-fitusýrur í matvælum á íslenskum markaði en nú hefur að nokkru leyti verið bætt úr því.

Á árunum 2008 og 2009 voru gerðar hjá Matís  fitusýrugreiningar á 51 sýni af matvörum í þeim tilgangi að uppfæra gögn í ÍSGEM gagnagrunninum um efnainnihald matvæla. Verkefnið var unnið í samstarfi við Lýðheilsustöð og Matvælastofnun. Áhersla var lögð á að kanna magn trans-fitusýra í unnum matvælum og því voru tekin sýni af borðsmjörlíki, bökunarvörum, djúpsteikingarfeiti, mat frá skyndibitastöðum, ís, kexi, snakki og sælgæti.

Stór rannsókn var gerð á fitusýrum í öllum flokkum matvæla á íslenskum markaði árið 1995. Niðurstöður greininganna nú sýna að hlutfall trans-fitusýra fyrir nær öll matvælin er lægra en áður var.

Í öllum flokkum matvara greindust a.m.k. sum sýnanna með litlu sem engu af trans-fitusýrum og er það mikil breyting frá því sem verið hefur. Til dæmis var nær ekkert af trans-fitusýrum í þeim tegundum af kexi sem teknar voru til skoðunar. Þetta sýnir að matvælaiðnaðurinn hefur fundið leiðir til að framleiða afurðir án trans-fitusýra. Það greindist þó talsvert af trans- fitusýrum í nokkrum sýnum af smjörlíki, bökunarvörum, ís og poppkorni. Ljóst er að framleiðendur geta endurbætt þessar vörur og losað þær við trans-fitusýrur. Niðurstöðurnar eru í samræmi við það að víða erlendis hefur náðst góður árangur við að draga úr trans-fitusýrum í matvælum.

Niðurstöður fitusýrugreininganna eru teknar saman fyrir fitusýruflokka í töflu hér neðar.

Helstu niðurstöður mælinganna voru:
a.     Hlutfall trans-fitusýra í þeim matvælum, sem greind voru, hafði almennt lækkað frá árinu 1995 en þá var gerð stór rannsókn á fitusýrum í íslenskum matvælum.

b.     Í sýnum af kexi var mjög lítið af trans-fitusýrum (undir 0,8% af fitusýrum). Í sýnum af sælgæti var lítið af trans-fitusýrum (undir 2% af fitusýrum). Í sýnum af mat frá skyndibitastöðum voru trans-fitusýrur undir 3,5% af fitusýrum.

c.      Í sýnum af borðsmjörlíki, bökunarvörum, jurtaís, smjörlíki og snakki voru matvörur frá sumum framleiðendum með mikið af trans-fitusýrum en í sýnum frá öðrum framleiðendum var magn þessara fitusýra óverulegt. Þetta sýnir að vel er framkvæmanlegt að framleiða þessi matvæli án trans-fitusýra. 

d.     Merkingar á umbúðum stóðust ekki í öllum tilfellum fyrir þær vörur sem voru til skoðunar. Umbúðir fyrir eitt kexsýnið bentu til þess að trans-fitusýrur væru í kexinu þar sem tilgreind var jurtafeiti hert að hluta. Það reyndist hins vegar ekki rétt, kexið var laust við trans fitusýrur.

 

sjá nánar www.lydheilsustod.is


stebbi

Til baka

AFLið á FACEBOOK

Ný smáfréttarás fyrir alla sem huga
að heilsunni! Gangið í hópinn og fáið
sendar heilsutengdar fréttir og
annað skemmtilegt frá okkur. 
Skráið ykkur hér.


Nýjar fréttir 




Mígreni og hjartaáfall



Brjósklos (Discus prolaps)




Stöðuleikaþjálfun fyrir ökkla




Átak gegn munntóbaksnotkun



Góð afnæmismeðferð



 



 



 



 



 



 


 


 


 



 

 
AFL sjúkraþjálfun ehf. • Borgartúni 6 • 105 Reykjavik • Sími 511 4111 • afl@aflid.is