26. ágúst 2010 - kl. 15:54 Mígreni tengt meiri líkum á hjartaáfalli Íslensk rannsókn um tengsl milli mígrenis með áru og líkinda á því að deyja
úr hjartasjúkdómum vekur heimsathygli. Niðurstöður rannsóknarinnar voru
birtar í gær í British Medical Journal. Byggt er á gögnum Hjartaverndar. Meira |
06. ágúst 2010 - kl. 09:47 Bagg er bögg - Átak gegn munntóbaksnotkun Bagg er bögg er nýtt átaksverkefni Jafningjafræðslu Hins hússins, Knattspyrnusambands Íslands og Lýðheilsustöðvar til að sporna við aukinni munntóbaksnotkun hjá ungu fólki. Verkefninu var hleypt af stokkunum með blaðamannafundi fyrir skemmstu. Á fundinum voru frumsýnd veggspjöld og bæklingar sem höfðu verið hönnuð sérstaklega fyrir átakið. Meira |
 |
| Það er komið sumar..... | 13. júlí 2010 - kl. 09:30 Sumarfrí Fréttaveita AFL´s er að detta í sumarfrí og því verða engar nýjar fréttir næstu vikurnar. Vonandi hafið þið það gott í sumar og við látum heyra frá okkur aftur í byrjun ágúst Meira |
13. júlí 2010 - kl. 09:12 Góð afnæmismeðferð Niðurstöður fyrstu rannsóknarinnar á árangri afnæmismeðferðar á Íslandi hafa nú verið birtar. Niðurstöðurnar sýna með óyggjandi hætti að afnæmismeðferð skilar miklum árangri hér á landi. Um 25 til 30 prósent Íslendinga þjáist af einhvers konar ofnæmi. Meira |
28. júní 2010 - kl. 12:27 Knattspyrnu- og lífsstílsnámskeið fyrir börn og unglinga með sérþarfir Börn og unglingar með sérþarfir á aldrinum 6-18 ára stendur til boða knattspyrnu- og lífsstílsnámskeið í sumar. Námskeiðin fara fram á íþróttasvæði Víkings í Fossvoginum. Meira |
24. júní 2010 - kl. 16:01 Íþróttasálfræði - ráðstefna Níu af fremstu íþróttasálfræðingum Evrópu koma til landsins og halda ráðstefnu um íþróttasálfræði og afreksíþróttir í samstarfi við ÍSÍ og Háskólann í Reykjavík.
Ráðstefnugjald er 12.000 kr. Veittur er 50% afsláttur fyrir nemendur (láta vita hjá hvaða skóla). Skráning fer fram á skraning@ru.is.
Meira |
23. júní 2010 - kl. 11:35 Ólympíudagurinn 2010 Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Ólympíufjölskylda ÍSÍ halda upp á Alþjóðlega Ólympíudaginn 23. júní. Þennan dag árið 1894 var Alþjóðaólympíunefndin stofnuð. Þetta er því sérstakur dagur í sögu íþrótta og er markmiðið að bjóða fólki að koma saman, hreyfa sig og......... Meira |
22. júní 2010 - kl. 08:29 NPA miðstöðin stofnuð Miðvikudaginn 16. júní 2010, var stofnfundur NPA miðstöðvarinnar haldinn og stofnfélagar kusu í stjórn félagsins.
Tilgangur fyrirtækisins er að styðja fatlað fólk við að útvega og skipuleggja persónulega aðstoð þannig það geti stjórnað sínu eigin lífi. Meira |
11. júní 2010 - kl. 09:25 Hláturinn lengir lífið ! Þegar við hlæjum þá hefur það sjálfkrafa jákvæð áhrif á líkamann. Þeir sem takast á við lífshættulega sjúkdóma með kímnigáfuna og kaldhæðnina að vopni eru yfirleitt sem lifa þessa sjúkdóma af. Þeir missa ekki sjónar af framtíðarmöguleikunum og tekst að halda í jákvæðnina, segir Martin Führ, sálfræðingur sem hefur sérstaklega rannsakað kímnigáfuna. Meira |
 |
| Veiðimaður dagsins | 10. júní 2010 - kl. 13:01 AFL-verjar á sjó AFL-verjar gerðu sér glaðan dag í gær og mættu niður á Reykjavíkurhöfn í lok vinnudags. Þar var boðið uppá humarsúpu í forrétt, síðan var siglt út á Faxaflóa á Eldingunni þar sem hvalir voru skoðaðir ásamt því að farið var í sjóstanga-veiðikeppni.
Heppnaðist ferðin mjög vel í alla staði og Meira |
 |
| Siggi - Veigur - Stebbi | 07. júní 2010 - kl. 12:05 AFL-verjar á golfmóti Golfmót sjúkraþjálfara fór fram í blíðskaparveðri sl. föstudag á Bakkakotsvelli í Mosfellsdal. Góð þáttaka var á mótinu sem heppnaðist feykivel í alla staði. AFL-verjar sendu 3 fulltrúa á þetta fyrnasterka mót. Menn voru að spila misvel og svo fór að einu verðlaunin sem þeir komu með heim voru fyrir búningana sem verður að segjast voru hinir glæsilegustu (sjá mynd). Þetta verða að teljast vonbrigði þar sem.... Meira |
03. júní 2010 - kl. 16:05 Tinna nýr sjúkraþjálfari á AFLi Tinna Mark Antonsdóttir sjúkraþjálfari hefur hafið störf á AFLi og bjóðum við hana hjartanlega velkomna.
Tímapantanir í síma 511-4111 Meira |