AFL sjúkraþjálfun • Borgartúni 6 • 105 Reykjavík • Sími 511 4111
AFL
Aðalsíða

   



Opnunartími

mánudaga til föstudaga
frá kl. 8 til 17



Nánari upplýsingar
& pöntunarsími 
511 4111


Áhugavert lesefni

AFL sjúkaþjálfun

 

Endurgreiðsla kostnaðar við sjúkraþjálfun 

Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í kostnaði við sjúkraþjálfun fyrir alla sjúkratryggða einstaklinga á Íslandi. Einstaklingur sem þarf á sjúkraþjálfun að halda ber hluta af kostnaði sjálfur (sjá gjaldskrá). Eftir atvikum er hægt að fá hluta þess kostnaðar sem fellur á einstaklinginn endurgreiddan hjá stéttarfélögum, tryggingafélögum eða öðrum aðilum.
Sjúkraþjálfunin Afl sér um að innheimta hlut Sjúkratrygginga Íslands

Stéttarfélög

Öll helstu stéttarfélög, VR, BHM, Efling, SFR, KÍ, Samiðn, Verkstjórafélagið og fleiri, taka þátt í kostnaði við sjúkraþjálfun.  Einstaklingur þarf að greiða fyrir sjúkraþjálfunina en getur síðan farið með reikninginn til stéttarfélagsins og fengið hluta hans endurgreiddan.  Sum stéttarfélög vilja fá afrit af læknabeiðninni með reikningum. 
Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi!

Tryggingafélög

Ef fólk verður fyrir slysi ber tryggingafélögum eftir atvikum að greiða allan útlagðan kostnað einstaklingsins vegna sjúkraþjálfunar.  Bílslys eru að fullu bætt og mörg frístundaslys ef fólk er með heimilistryggingu.
Kannaðu málið hjá þínu tryggingafélagi!

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ)

Þeir sem verða fyrir íþróttaslysum hjá íþróttafélagi sem heyrir undir ÍSÍ og eru undir leiðsögn þjálfara eiga rétt á 80% endurgreiðslu kostnaðar við sjúkraþjálfun.  Fylla þarf út tilkynningu, fá afrit af læknabeiðni og fara með reikninginn til ÍSÍ.

Sjúkratryggingar Íslands

Vinnuslys eru greidd að fullu af Sjúkratryggingum Íslands ef þau hafa verið tilkynnt af atvinnurekanda til Vinnueftirlits ríkisins og Sjúkratryggina Íslands.

Sjúklingar sem orðið hafa fyrir miklum útgjöldum vegna læknishjálpar, lyfja, sjúkra-, iðju- og talþjálfunar geta átt rétt á endurgreiðslu kostnaðar að hluta hjá Sjúkratryggingum Íslands.  
Nánari upplýsingar eru að finna á: www.tr.is:80/heilsa-og-sjukdomar/endurgreidslur/

Til baka

AFLið á FACEBOOK

Ný smáfréttarás fyrir alla sem huga
að heilsunni! Gangið í hópinn og fáið
sendar heilsutengdar fréttir og
annað skemmtilegt frá okkur. 
Skráið ykkur hér.


Nýjar fréttir 




Mígreni og hjartaáfall



Brjósklos (Discus prolaps)




Stöðuleikaþjálfun fyrir ökkla




Átak gegn munntóbaksnotkun



Góð afnæmismeðferð



 



 



 



 



 



 


 


 


 



 

 
AFL sjúkraþjálfun ehf. • Borgartúni 6 • 105 Reykjavik • Sími 511 4111 • afl@aflid.is