I:\Vinna\N\Nýprent\2005-12-02 - afl\Aðkomið Borgartúni 6 • Reykjavík • Sími 511 4111

Líkamsþyngdarstuðull (Body Max Index)

Body Mass Index (BMI) = Líkamsþyngdarstuðull samkvæmt manneldisráði

Þegar hlutfall fitu í líkamanum er komin yfir ákveðin mörk getur hún haft áhrif á heilsu þína. Þú getur fylgst með hlutfallinu með því að finna þyngdarstuðul þinn með BMI útreikningum.
Líkamsþyngdarstuðull er reiknaður út frá líkamsþyngd og hæð og er notaður sem mælikvarði á holdafar fólks. Staðallinn skiptist þannig að þeir sem eru milli 20-25 eru taldir vera í eðlilegum holdum meðan þeir sem eru milli 25-30 eru of þungir - ef líkamsþyngdarstuðull mælist hins vegar yfir 30 telst viðkomandi vera með offitu.
 

BMI = kg/m²  (BMI = þyngd/hæð x hæð)

Dæmi:

Veigur er 83 kg og 1,86 m á hæð
83/(1,86x1,86)= 22,3
Líkamsþyngdarstuðull Veigs er 22,3, sem er þal. í kjörþyngd (sbr töflu)

Valdi er 99 kg og 1.82 m á hæð
99/(1.82x1.82)= 27.2
Líkamsþyngdarstuðull Valda er 27,2 sem er þal. of þungur (sbr töflu)

bmi.jpg

Hafa skal þó í huga að gildin sem fást úr jöfnunni eru ekki algild. Þannig eru þeir sem stunda íþróttir oft með mikinn vöðvamassa sem áhrif hefur á þyngdina og þannig þyngdarstuðulinn. Vel þjálfaður íþróttamaður getur þannig haft sama líkamsþyngdarstuðul og sá sem er of þungur.

 

  1-4 af 4  
No image afl 
 
  101 Reykjavík   No image allir 
Allir 
  101 Reykjavík   No image Eigendur 
Eigendur AFL 
  101 Reykjavík   No image stebbi 
Stefán Örn Pétursson 
  101 Reykjavík  
   

Afl sjúkraþjálfun ? Borgartúni 6 ? Reykjavík ? Sími 511 4111
Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 8 til 17