Athugið: Sjúklingar greiða aukagjald vegna upphafsskoðunar í samræmi við aðrar meðferðir. Sjúklingar greiða ekki aukagjald vegna sérfræðiálags. Elli- og örorkulífeyrisþegar með óskerta tekjutryggingu, börn og unglingar yngri en 18 ára greiða ekkert gjald vegna fyrirfram samþykktrar viðbótarþjálfunar (umfram 25 meðferðir á 365 daga tímabili) Sjúkraþjálfun vegna afleiðinga tilkynntra bótaskyldra slysa skv. almannatryggingalögum er hinum slösuðu oft að kostnaðarlausu. Sjúkratryggingar Íslands geta samþykkt að heimameðferð sé sjúklingi að kostnaðarlausu í sérstökum sjúkdómstilvikum.